Held að sumarið verði klassa!!!!... gott hingað til!... vonandi kemur svo ekki hellidemba og leiðindi!!!!... anyways...
Helgin var sweet... ætlaði að sofa út... en stefán mætti í vinnu kl 9 og það var ekkert sofnað aftur eftir að hann fór út... fór fram og tók til... rýmdi fyrir nýja fallega sófasettinu og nýju fallegu mublunum

(sjitt hvað ég er orðin fullorðin... þegar maður er farin að vakna á morgnana til að taka til og rýma fyrir húsgögnum, komin í greiðsluþjónustu í bankanum sínum, hætt að vera með námsmannakort, farinn að þvo og elda sjálfur þá er maður orðinn fullorðinn) og já sjitt... ég er orðin fullorðin!

já Húsóbolti um helgina og auðvitað unnu strákarnir mínir í grafarholtinu húsómótið þriðja árið í röð

geri aðrir betur!! dollan komin til að vera í grafarholti... en við skulum ekki ræða hvernir okkur stelpuliðinu gekk... !!!

En já... annars eru ástralarnir að koma í heimsókn til íslands á miðvikudaginn og svo er maður að fara í bústað á föstudaginn og verð fram á mánudag!!!.. sööövíít!
Annars rúlla venjulegir dagar bara svona... vinna, ræktin, heim að vera fullorðin, og sofa!

Annars tók ég petru ofur mikið til fyrirmyndar um daginn og bakaði köku!.. reyndar betty crooker! en það er sama... ég bakaði köku! dró fram fínu matvinnsluvélina sem er btw úr plasti!... fór að hræra og hræra og alltíeinu heyri ég smell!.. en pæli ekkert í því og hræri bara áfram... svo var ég að fá mér kökubita daginn eftir eða eitthvað og þá bít ég í eitthvað hart! það var ekki gott!... og ég spítti þv´útúr mér þá var það lítið plaststykki!... ég fór að kvarta við stefán yfir því að hafa fengið plast stykki uppí mig og þá hafði hann líka fengið eins daginn áður!!!!:.. ég kíki á vélina þá höfðu tvö lítil horn brotnað uppúr!!!!... þar fór fína matvinnsluvélin í vaskinn!!!!... hún er ekkert ónýt...en ekkert víst að maður vilji nota hana aftur þar sem hún var að reyna að mata mann með sjálfri sér!!!!
en já anyways... á döfinni er:
sumarbústaðarferð (kannski til eyja líka)
löng helgi! (er samt bara mánudagur í dag!)
Kaupa flugmiðana til ástralíu (Hanna og Stefán framtaksömu!!!!)
hengja upp gardínur (já ég veit að það var á döfinni fyrir tveimur vikum)
fullt af fjöri!
en já það er búið að taka mig svona u.þ.b 3 klukkutíma að skrifa þessa færslu svo ég ætla að láta þetta gott heita!!!!
ú já hey er búin að uppfæra tenglana og tók út letibloggara sem ég skoða ekki lengur

ef þið eruð sár skammið mig þá!!!!